Blóðug spor Mossad Óli Tynes skrifar 19. febrúar 2010 12:26
Þótt Ísraelar hvorki játi né neiti aðild er talið nokkuð víst að það var leyniþjónustan Mossad sem myrti háttsettan Hamas foringja í Dubai í síðasta mánuði.Hann hefur verið umsvifamikill í vopnakaupum fyrir hreyfinguna.Mossad hefur myrt óvini Ísraels í mörgum löndum í gegnum árin. Til dæmis eftir árásina á ísraelska íþróttamenn á Ólympíuleikunum í Munchen árið 1972. Samtökin Svarti september myrtu þá ellefu íþróttamenn.Í kjölfarið gerði Mossad áætlun sem hlaut nafnið reiði Guðs og þá hófst alda morða um alla Evrópu og Miðausturlönd.Gleyma aldreiOg Ísraelar eru langræknir. Næstu tuttugu árin voru sérstakar morðsveitir Mossad í því verkefni að leita uppi og drepa alla þá sem á einhvern hátt voru taldir hafa komið nálægt árásinni í Munchen.Þetta komst í hámæli þegar útsendarar Mossad myrtu arabiskan þjón í Lillehammer í Noregi árið 1973.Það kom í ljós að Mossad hafði farið mannavillt og þjónninn var alsaklaus. Norðmenn handtóku nokkra úr Mossad sveitinni og dæmdu þá til fangelsisvistar en þeim var sleppt og sendir heim árið 1975.Mossad lét þetta þó ekki á sig fá. Það var haft upp á manninum sem þjónninn hafði verið talinn vera og hann var myrtur.Engir vita nema Ísraelar hversu margir voru ráðnir af dögum en þeir skiptu einhverjum tugum.Og það er til marks um fagmennsku leyniþjónustunnar ef svo má að orði komast að Lillehammer var eina skiptið þar sem eitthvað fór úrskeiðis.
Mest lesið Breytingar í vændum á skrifstofu forseta Innlent Hegðun Helga kunni að skýra skort á símtölum Innlent Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Erlent Uppsagnir hjá Norðuráli í dag Innlent Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Erlent „Handagangur í öskjunni“ leiddi til þess að menntskælingar fengu áfengi Innlent Dæmigert hundaflaut að spyrja hvort kynin séu tvö Innlent Nýtt Lækjartorg á ís þar til flóðamat liggur fyrir Innlent Minna fólk á að hafa vistir til þriggja daga á heimilinu Innlent „Þau eru að herja á börnin okkar“ Innlent Fleiri fréttir James Comey ákærður vegna Rússarannsóknar Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Enn lítið vitað um leyniskyttuna og tilefni árásarinnar í Dallas Hóta Demókrötum með umfangsmiklum uppsögnum Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Keppast við að ákæra Comey Trump krefst rannsóknar á „þríþættu skemmdarverki“ hjá SÞ Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Ætlar sér að koma böndum á sjónvarpsstöðvar Macron telur Trump ekki fylgjandi innlimun Vesturbakkans Sést til dróna við fjóra flugvelli í Danmörku Flugvellinum í Álaborg lokað vegna drónaflugs Segja árásina hafa beinst gegn ICE Pútín auki einfaldlega stríðsreksturinn verði hann ekki stöðvaður Sprenging í Osló talin tengjast sænsku glæpagengi Þrír skotnir af leyniskyttu við byggingu ICE í Dallas Biðjast afsökunar á „svörtum kafla“ í sögu Danmerkur og Grænlands Kenna Trump-liðum um bæði rúllustigann og textavélina Ekki staðfest hvort það hafi verið drónar sem röskuðu flugumferð í Osló Ekki pappírstígur heldur alvöru björn Vinsælum þáttarstjórnanda sagt upp vegna ásakana um brot gegn unglingsstúlku Drónamálið enn óupplýst: „Við erum heimskir nýgræðingar“ Kimmel snéri aftur, Trump til mikillar óánægju Rússland sé „pappírs tígur“ og Úkraínumenn geti unnið landið aftur Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Sprenging í Osló og stórt svæði girt af Ryan Routh sekur um að reyna að myrða Trump Gagnrýndi allt og alla í langri og slitróttri ræðu Sjá meira