Of margir bankar á Íslandi 29. júní 2010 04:30 Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segja stjórnvöld hafa náð umtalsverðum árangri í að kljást við efnahagsvandann. fréttablaðið/arnþór
Kreppan er tæknilega séð búin, að mati Marks Flanagan, yfirmanns sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hér á landi. Nefndin hefur verið hér í tvær vikur og fundað með stjórnvöldum og embættismönnum um stöðu efnahagsmála. Flanagan dró hins vegar engan dul á að erfiðir tímar væru fram undan og mörgu væri ólokið. Að mati sjóðsins væri Ísland þó á áætlun. Samkvæmt efnahagsáætlun AGS og Íslands er gert ráð fyrir þriggja ára áætlun til að koma Íslandi út úr kreppunni. Flanagan segir enn stefnt að því að þeirri áætlun ljúki haustið 2011, en vissulega geti ýmislegt komið upp á sem gæti tafið fyrir. Ísland gæti, ef á þarf að halda, sótt um nýja aðstoð, en stefnan væri að ljúka aðgerðum á tilsettum tíma. Sjóðurinn telur að í lok árs 2010 fari landið enn frekar að rísa og efnahagur að batna. Nefndin verður hér í sumar og stefnt er að því að ljúka þriðju endurskoðun efnahagsáætlunarinnar í síðasta lagi í september. Þar gætu samningar sem ólokið er, líkt og Icesave, þó spilað inn í. „Samningarnir höfðu vissulega áhrif á fyrri endurskoðun, en sú staðreynd að aðstoðin var veitt og áætlunin endurskoðuð í tvígang, án þess að Icesave sé frágengið, sýnir, svo ekki verður um villst, að lúkning samninganna er ekki skilyrði fyrir aðstoðinni." Fulltrúar sjóðsins funduðu með stjórnvöldum, sem eru í óðaönn að undirbúa fjárlög, um efnahagsáætlunina og stöðu hennar. „Samkomulag hefur náðst í flestum þáttum varðandi stefnu um hvernig markmiðum áætlunarinnar verður náð," segir í tilkynningu frá sjóðnum. Þar segir enn fremur að þrátt fyrir að tæknilega séð hafi landið komist úr kreppunni, sé margt að varast. „Engu síður er gert ráð fyrir að efnahagsbatinn komist á skrið í lok ársins og með skynsamlegri efnahagsstefnu, er hægt að viðhalda nýlegum árangri sem náðist í að koma jafnvægi á gjaldmiðilinn og draga úr verðbólgu." Þá segir að stjórnvöld hafi náð umtalsverðum árangri í fjárlagagerð fyrir árið 2011 og þriðja endurskoðunin geti skilað afgangi og dregið úr skuldum Íslands, að því gefnu að staðið verði fast við niðurskurð á árinu og dregið verði úr óvissu varðandi bankana. Spurður um bankakerfið og hvernig stuðningi stjórnvalda við bankana ætti að vera háttað, sagði Flanagan óvissu ríkja eftir dóm Hæstaréttar varðandi gengislán. Þó væri ljóst að allt of margir bankar væru á landinu, miðað við stærð efnahagsins. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Fleiri fréttir Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Sjá meira