Vilja stagbrú yfir Ölfusána 26. mars 2010 05:30 Tveir kostir. Undir liggja tvö brúarstæði með tveimur mismunandi brúm. Enn er óvíst hvað verður fyrir valinu. Tillögurnar eru í umhverfismati.
Ný veglína Suðurlandsvegar og tvær útfærslur brúarstæðis yfir Ölfusá er nú í umhverfismati. Vegurinn verður færður norður fyrir Selfoss og ný brú byggð yfir Ölfusá. Tvær leiðir yfir ána eru í skoðun og tvær mismunandi tegundir af brúm. Bæjaryfirvöld í Árborg vilja að byggð verð stagbrú með stólpa í Efri-Laugardælaeyju. Vegagerðin hefur haldið fram bogabrú norðan við eyjuna, en þar má byggja hana í einum boga yfir ána. Það er ódýrasti kosturinn. Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri segir að nýjustu mælingar gefi til kynna að ekki sé svo mikill verðmunur á kostunum tveimur. Hún vonast til þess að Vegagerðin fallist á sjónarmið bæjaryfirvalda, enda hafi brú þar verið á skipulagi um langa hríð; bæði hjá Árborg og eins hjá Flóahreppi. „Bæjarstjórn Árborgar hefur alveg skýra afstöðu og við viljum sjá brúarstæðið yfir eyjuna. Þar viljum við sjá stagbrú,“ segir Ragnheiður. „Við höfum gert ráð fyrir þessu brúarstæði í áratugi. Þar sem hinn kosturinn er teiknaður er útivistarsvæðið okkar, ræktaður skógur og sögu- og náttúruminjar. Við teljum það of dýru verði keypt að fórna því.“ Vegagerðin hefur sett fram hugmyndir um fjóra kosti, stag- eða bogabrú yfir Efri-Laugardælaeyju og stag- eða bogabrú norðan við eyna. Brú þar yrði í landi Laugardæla. Til eru hugmyndir um íbúðabyggð þar, en óljóst er hvað af þeim verður. Óvíst er hvenær af framkvæmdunum verður, en þær eru hvorki á vegaáætlun fyrir árið 2011 né 2012. Ragnheiður segir mikilvægt að fara sem fyrst í þær, enda sé um mikið öryggismál að ræða. Hún segist ekki óttast minni viðskipti í bænum við það að vegurinn færist út fyrir hann. „Gamla brúin verður áfram og sinnir þeirri umferð sem á erindi í bæinn. Öll þungaumferðin fer fram hjá, en hún getur fælt frá. Þá má búast við aukinni umferð eftir að höfnin opnar í Bakkafjöru.“ kolbeinn@frettabladid.is val bæjaryfirvalda Bæjarstjórn Árborgar vill stagbrú með stólpa í Efri-Laugardælaeyju. Það er dýrari kostur, en nýjar rannsóknir benda til að hægt sé að lækka þann kostnað.
Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Erlent Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Innlent Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Innlent Einar horfir til hægri Innlent Harmar ákvörðun Guðmundar Innlent Fleiri fréttir Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Sjá meira