Innlent

Gaf fólki varning úr sjoppu

Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir Héraðsdómi Suðurlands fyrir að afhenda varning út um lúgu söluskála Olís á Selfossi án þess að taka greiðslu fyrir.

Þannig rétti maðurinn óþekktum manni eða konu tvö karton af sígarettum út um lúguna. Næsti „viðskiptavinur" fékk kók og sælgæti án greiðslu þegar hann leit við. Þá bar að sjoppunni stúlku um tvítugt. Hún fékk kók, en þar að auki renndi sjoppumaðurinn korti í gegnum kortalesara og tók peningaupphæð úr afgreiðslukassanum sem hann lét stúlkuna hafa. Maðurinn hefur játað brotin.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×