Hodgson baðst afsökunar á tapinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. september 2010 10:45 Roy Hodgson var niðurlútur eftir leikinn í gær. Nordic Photos / Getty Images
Roy Hodgson, stjóri Liverpool, bað stuðningsmenn liðsins afsökunar á tapi þess fyrir Northampton í ensku deildabikarkeppninni í gær. Northampton vann í vítaspyrnukeppni eftir að framlengdum leik lauk með 2-2 jafntefli. „Við vorum að spila gegn neðrideildarliði og sama hvað gerist þá er það afar neikvætt ef við náum ekki að vinna slíkan leik," sagði Hodgson eftir leikinn í gær. „Þetta er bakslag fyrir félagið og eitt af mörgum sem við þurfum að takast á við í augnablikinu." Liverpool hefur einnig gengið illa í upphafi tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og aðeins unnið einn af fimm leikjum þar. „Ég vissi alltaf að þetta yrði krefjandi og erfitt starf. Byrjunin á tímabilinu hefur ekki verið okkur hagstæð en svona er þetta í fótboltanum. Ég varð fyrir vonbrigðum með frammistöðuna og átti von á meiru." Hodgson gerði margar breytingar á liði Liverpool í leiknum en hann sagði það enga afsökun. „Þetta eru leikmenn sem voru fengnir til félagsins og margir þeirra voru mjög dýrir og með stórt og mikið orðspor. Kannski þekki ég þá ekki nógu vel en þeir voru ekki að hrífa mig mikið." „Þetta var tækifæri fyrir leikmenn að sýna hvað þeir geta. Því miður og með fullri virðingu fyrir Northampton vorum við ekki nógu góðir til að vinna leikinn."
Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Sjá meira