Erlent

Sektuð fyrir að aka með blæju

Sarkozy Frakklandsforseti vill að notkun höfuðblæju verði bönnuð.
Sarkozy Frakklandsforseti vill að notkun höfuðblæju verði bönnuð. Mynd/AP

Frönsk kona var nýlega sektuð um 22 evrur (jafnvirði tæpra 3.800 króna) fyrir að aka með höfuðblæju. Taldi lögregla að blæjan byrgði henni fulla sýn í umferðinni.

Málið hefur vakið athygli en Sarkozy Frakklandsforseti vill að notkun höfuðblæju verði bönnuð. Slíkt bann var samþykkt í Belgíu á dögunum.

Lögmaður konunnar gagnrýnir framgöngu lögreglunnar og bendir á að konan hafi ekið óáreitt í níu ár með blæjuna. Málið lykti því af pólitík. Segir hann að ef höfuðblæja múslimskra kvenna teljist byrgja þeim sýn hljóti hið sama að eiga við um höfuðbúnað nunna og hjálma mótorhjólafólks.- bþs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×