Afstaða til lóðaskila er óbreytt 16. febrúar 2010 01:00
Reykjavíkurborg hyggst ekki fara eftir úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og taka aftur við við einbýlishúsalóð hjóna í Úlfarsárdal og atvinnulóð Brimborgar á Esjumelum. „Afstaða Reykjavíkurborgar er hin sama og áður; það sé enginn einhliða skilaréttur til staðar. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að sömu niðurstöðu og borgin hvað það varðar í desember," segir Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður. Þótt ráðuneytið skorti heimildir til að leggja fyrir borgina að endurgreiða lóðirnar beinir það þeim tilmælum til borgarinnar að hún rétti stöðu lóðarhafanna þannig að þeir verði jafnsettir öðrum sem hafa fengið úthlutað byggingarrétti hjá borginni. „Ráðuneytið getur ekki lagt fyrir Reykjavíkurborg að taka við lóðunum og endurgreiða þær," bendir borgarlögmaður á og ítrekar að héraðsdómur hafi komist að þveröfugri niðurstöðu við sveitarstjórnarráðuneytið í dómsmáli í desember. Var þar um að ræða 297 milljóna króna atvinnulóð sem Léttkaup ehf. fengu úthlutað undir verslun í Hádegismóum í janúar 2007. Búist sé við að það mál gangi til Hæstaréttar. Miðað við hraða mála þar fáist endanleg niðurstaða jafnvel ekki fyrr en um eða eftir næstu áramót. „Þannig að það eru engin óskapleg tímamót við þennan úrskurð ráðuneytisins," segir Kristbjörg Stephensen.- gar
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira