Fær að halda ránsfengnum frá Haítí Óli Tynes skrifar 3. febrúar 2010 12:53 Papa Doc og Baby Doc.
Hæstiréttur Sviss hefur úrskurðað að skila eigi fjögurra komma sex milljóna dollara bankareikningum til Duvalier fjölskyldunnar frá Haítí. Papa Doc Duvalier var forseti Haítís frá 1957-1971. Hann var grimmur harðstjóri sem talið er að hafi látið myrða um þrjátíuþúsund manns á valdaferli sínum. Jafnframt stal hann gríðarlegum fjárhæðum frá þjóðinni. Sonur hans sem kallaður var Baby Doc tók við forsetaembættinu þegar faðir hans lést árið 1971. Hann reyndist ekki föðurbetrungur og stal öllu steini léttara frá þjóð sinni. Hann hrökklaðist loks úr landi árið 1986 og settist að í Frakklandi með fjölskyldu sína. Þar hélt hann sig ríkmannlega á stolnu fé þeirra feðga. Duvalier fjölskyldan átti bankareikninga víða um heim. Meðal annars í Sviss þar sem gerð var tilraun á síðasta ári til þess að gera þá upptæka. Upptakan var staðfest í undirrétti en hæstiréttur sneri því við nokkrum klukkustundum áður en jarðskjálftinn mikli reið yfir Haítí. Ekki var hinsvegar skýrt frá úrskurði hans fyrr en í dag. Í úrskurðinum sagði að rétturinn ætti ekki annarra kosta völ þar sem hinir meintu glæpir væru fyrndir.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Sjá meira