Mergsugu Glitni í eigin þágu 13. maí 2010 09:00
Sýslumaðurinn í Reykjavík tekur afstöðu til beiðni slitastjórnar og skilanefndar Glitnis um kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Lárusar Welding og Pálma Haraldssonar strax eftir helgi, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Verði sýslumaður við beiðninni má gera ráð fyrir að allar eignir þremenninganna hér á landi verði frystar, þar á meðal 45 prósent eignarhlutur Jóns Ásgeirs í Gaumi og eignarhlutur Pálma í Iceland Express auk annarra eigna þeirra hér á landi. Skilanefnd og slitastjórn Glitnis stefndu í fyrradag Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og sex öðrum fyrrverandi stjórnendum og eigendum bankans til greiðslu hátt í 260 milljarða króna. Þeir eru sakaðir um samsæri um að ræna bankann innan frá og nota féð til að bjarga eigin fallandi fyrirtækjum. Stefnan beinist að Jóni Ásgeiri og konu hans Ingibjörgu Pálmadóttur, Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, Þorsteini Jónssyni, áður stjórnarformanni bankans, Jóni Sigurðssyni hjá FL Group, Pálma Haraldssyni í Fons og Hannesi Smárasyni. Samkvæmt heimildum blaðsins mun stjórn Stoða, áður FL-Group, fara yfir stöðu Jóns Sigurðssonar, forstjóra félagsins, í kjölfar stefnunnar. Ekki náðist í Eirík Elís Þorláksson, stjórnarformann Stoða, í gær. Í stefnunni er því lýst hvernig eigendur Glitnis hafi raðað mönnum sér hliðhollum í stjórn bankans. Stjórnin hafi svo í kjölfarið skipt út reyndum forstjóra, Bjarna Ármannssyni, fyrir Lárus Welding, sem hafi verið lítt reyndur og að mestu fylgt fyrirmælum Jóns Ásgeirs. Jón Ásgeir og aðrir stefndu hafi náð stjórn yfir bankanum og notað áhrif sín til að láta bankann lána milljarða Bandaríkjadala til aðila þeim tengdum. Ástæða þess að sjömenningunum er stefnt í New York er skuldabréfaútboð sem þar fór fram í september 2007. Stefndu eru sakaðir um að hafa leynt skuldbindingum bankans við eigendur og aðila þeim tengdum, til að laða fjárfesta frekar að útboðinu. Alls safnaðist einn milljarður Bandaríkjadala í útboðinu. Jón Ásgeir Jóhannesson svaraði ekki skilaboðum Fréttablaðsins í gær. Ingibjörg S. Pálmadóttir, eiginkona hans, sagði: „Við vitum jafn lítið og þið." Þá er endurskoðendafyrirtækinu PriceWaterhouseCoopers stefnt fyrir að liðka til og aðstoða við ólögmæt framferði eigenda og stjórnenda bankans.
Mest lesið Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Fleiri fréttir Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Sjá meira