Enski boltinn

Capello: Hurðin stendur áfram opin fyrir Bridge

Ómar Þorgeirsson skrifar
Fabio Capello.
Fabio Capello. Nordic photos/AFP

Landsliðsþjálfarinn Fabio Capello hjá Englandi er ekki búinn að gefa upp alla von um að vinstri bakvörðurinn Wayne Bridge hjá Manchester City muni fara með enska landsliðinu á lokakeppni HM næsta sumar eftir allt saman.

Bridge tilkynnti í gær að hann væri hættur að gefa kost á sér í enska landsliðið en ástæðuna má rekja til ásættis hans við John Terry, fyrrum liðsfélaga sinn hjá Chelsea, eftir að upp komst um framhjáhald Terry með barnsmóður og fyrrum kærustu Bridge. Ítalinn vonast hins vegar til þess að vinstri bakvörðurinn skipti um skoðun.

„Ég var að fljúga til Englands frá Ítalíu þegar ég fékk fregnirnar um að Bridge vildi hætta og ég verð að segja að þessi ákvörðun kom mér á óvart. Ég virði hins vegar ákvörðun hans og er búinn að láta hann vita að hurðin stendur áfram opin fyrir hann. Það eru enn þrír mánuðir þangað til ég tilkynni lokahópinn fyrir HM," segir Capello í viðtali við Sky Sports fréttastofuna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×