Ríkið leggur hundrað milljónir í einkasjúkrahús Róberts 23. febrúar 2010 18:53
Ríkið leggur hundrað milljónir króna í endurbyggingu gamla hersjúkrahússins á varnarsvæðinu, sem Róbert Wessman ætlar að leigja undir einkasjúkrahús. Framkvæmdum vegna umfangsmikilla endurbóta á sjúkrahúsinu er stjórnað af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar, sem hyggst síðan leigja það til Iceland Healthcare, félags í eigu Róberts Wessman. Á spítalanum á að starfrækja einkasjúkrahús þar sem boðið verður upp á sérhæfðar meðferðir fyrir útlendinga. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar er einkahlutafélag, að fullu í eigu ríkisins. Hlutverk þess er að annast rekstur, umsjón og umsýslu eigna ríkisins á hersvæðinu og starfar það samkvæmt samningi við fjármálaráðuneytið. Þróunarfélagið hefur stofnað sérstakt félag, Seltún, sem á að sjá um verkefnið og leggur inn í það 100 milljónir króna. „Þegar peningar skattborgarans eru notaðir til að fjármagna einkasjúkrahús vakna spurningar fyrir okkur sem skattborgara og þjóðfélagsþegna hvort við viljum tvöfalt heilbrigðiskerfi," segir Ögmundur Jónasson, þingmaður VG. Ýmsar aðrar spurningar vakni og svör þurfi að fást við þeim áður en haldið er lengra með verkefnið, segir Ögmundur. „Er eðlilegt að láta peninga úr vösum skattborgarans renna inn í einkarekið heilbrigðiskerfi á sama tíma og við erum að skera niður framlög til almannaþjónustunnar," spyr Ögmundur. Sem heilbrigðisráðherra átti Ögmundur nokkra fundi með Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar og öðrum forsvarsmönnum verkefnisins. Engar niðurstöður hafi legið þar fyrir, enda viðskiptahugmyndin að mati Ögmundar aldrei fullmótuð.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Sjá meira