Enski boltinn

Man. Utd að missa af lestinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Berbatov var lélegur í dag.
Berbatov var lélegur í dag.

Vonbrigði Man. Utd ætla engan enda að taka þessa dagana en liðið er á góðri leið með sturta tímabilinu ofan í klósettið á mettíma.

United er nýfallið úr leik í Meistaradeildinni og eftir markalaust jafntefli við Blackburn í dag stendur liðið afar höllum fæti í baráttunni við Chelsea um Englandsmeistaratitilinn.

United er stigi á eftir Chelsea og hefur þess utan leikið einum leik meira en Lundúnafélagið sem spilaði ekki í deildinni um helgina.

Leikur United gegn Blackburn í dag olli miklum vonbrigðum og liðið er einfaldlega ekki svipur hjá sjón án Wayne Rooney.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×