Innlent

Nóg af súkkulaði og núggat

með sigurkökuna Hilmir Hjálmarsson sigraði í keppninni um köku ársins.
með sigurkökuna Hilmir Hjálmarsson sigraði í keppninni um köku ársins.

Hilmir Hjálmarsson hjá Sveinsbakaríi bar sigur úr býtum í keppni um Köku ársins sem Landssamband bakarameistara efnir til árlega í samstarfi við Nóa-Síríus.

Alls bárust tíu kökur í keppnina og þurfa innsendar kökur að vera fallegar, bragðgóðar og líklegar til vinsælda. Sala á kökunni hefst í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara um helgina en hefð er fyrir því að kakan sé kynnt um konudagshelgina. Sigurkakan í ár er samsett úr dökkum súkkulaðibotni, hvítum botni, núggatmús og hjúpuð með dökkum Konsum orange-súkkulaðihjúp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×