Enski boltinn

O´Neill: Sýndum mikinn karakter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Martin O´Neill, stjóri Aston Villa, var að vonum afar ánægður með strákana sína sem komu til baka gegn Reading eftir að hafa verið 2-0 undir í hálfleik.

„Þetta var frábær sprettur hjá okkur í upphafi síðari hálfleiks og við þurftum á því að halda eftir dapran fyrri hálfleik," sagði O´Neill en Villa skoraði þrjú mörk á fyrstu 11 mínútum síðari hálfleiks og vann að lokum 4-2.

„Ég er hæstánægður með liðið sem sýndi gríðarlegan karakter. Strákarnir vissu að þeir voru lélegir í fyrri hálfleik og þeir vildu gera betur og gerðu það."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×