Bridge hættur með landsliðinu - fer ekki á lokakeppni HM Ómar Þorgeirsson skrifar 25. febrúar 2010 12:15 Wayne Bridge. Nordic photos/AFP
Vinstri bakvörðurinn Wayne Bridge hjá Manchester City hefur nú staðfest það sem The Guardian hélt fram í morgun að hann gefi ekki lengur kost á sér í enska landsliðið. Bridge er búinn að vera áberandi í fjölmiðlaumfjöllun síðustu vikur eftir að upp komst um framhjáhald John Terry ,fyrrum liðsfélaga hans hjá Chelsea, með barnsmóður og fyrrum kærustu vinstri bakvarðarins. Bridge sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins rétt í þessu og útskýrir þar ákvörðun sína. „Eftir vandlega íhugun hef ég ákveðið að gefa ekki lengur kost á mér í enska landsliðið. Ég hef alltaf verið mjög stoltur af því að spila fyrir Englands hönd en eftir atburði síðustu vikna og umfjöllun fjölmiðla hef ég ákveðið að það sé best fyrir mig og enska landsliðið að ég dragi mig til hliðar. Ég hef þegar tilkynnt landsliðsþjálfaranum og aðstoðarmönnum hans um ákvörðun mína og óska liðinu alls hins besta í Suður-Afríku næsta sumar," segir í yfirlýsingu frá Bridge. Fyrir utan brotthvarf Bridge úr landsliðshópi Englands er alls óvíst með þátttöku Ashley Cole á lokakeppni HM vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir og því útlit fyrir að vinstri bakvarðastaðan ætli að verða vandræðaefni fyrir landsliðsþjálfarann Fabio Capello. Eins og staðan er núna þykja Leighton Baines hjá Everton og Stephen Warnock hjá Aston Villa vera líklegustu kostirnir.
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira