Himinháar skuldir Glazer-fjölskyldunnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. júní 2010 10:00 Avram Glazer, stjórnarformaður Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Glazer-fjölskyldan, eigendur Manchester United, skuldar meira en 208 milljarða króna eftir því sem kom fram í fréttaskýringaþætti BBC, Panorama, í gær. Stuðningsmenn Manchester United hafa margítrekað lýst yfir óánægju sinni með eigendur félagsins og munu þessar fregnir væntanlega auka óánægjuraddirnar enn. Talsmaður fjölskyldunnar sagði í þættinum að eignir fjölskyldunnar væru tæplega 380 milljarða króna virði. En þrátt fyrir það var sýnt fram á það í þættinum að fjölskyldan hefur nýlega tekið út lán með veði í verslunarmiðstöðvarkeðju hennar annars vegar og ruðningsliðinu Tampa Bay Buccaneeers hins vegar. Skuldir Manchester United nema um 132 milljörðum króna og munu vaxtagreiðslur á hluta þeirra upphæðar hækka upp í 16,25 prósent á næstunni. Stuðningsmenn félagsins hafa bent á að þó svo að það hafi selt Portúgalann Cristiano Ronaldo til Real Madrid fyrir rúma fimmtán milljarða króna hafi leikmaður sem þykir í sama gæðaflokki og hann ekki verið keyptur til félagsins. Þar að auki hafi á sama tíma miðaverð á leiki hækkað um næstum þriðjung. Eigendur hafa fullyrt að Alex Ferguson standi til boða að fá pening til leikmannakaupa hafi hann áhuga á því.
Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Fleiri fréttir Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Sjá meira