Innlent

Vandræðahúsum fækkar

„Eftir því sem ég best veit hafa þessi mál færst til miklu betri vegar á undanförnum misserum," segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn um stöðu svokallaðra vandræðahúsa.

Lögreglan hefur í gegnum tíðina þurft að hafa stöðug afskipti af íbúum tiltekinna húsa í Reykjavík vegna ölvunar og óláta. Fyrir nokkrum árum taldi lögregla að slík vandamál tengdust fimmtán til tuttugu húsum.

Geir Jón segir lögreglu hafa tekið á þessum vanda með eigendum húsanna. Það hafi gefið góða raun, en hann hafi ekki tölu um fjölda húsanna nú.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×