Benítez neitar að staðfesta að framtíð sín sé hjá Liverpool Hjalti Þór Hreinsson skrifar 2. maí 2010 11:30 Rafa Benítez. Nordicphotos/Getty
Orðrómur þess efnis að Rafael Benítez muni hætta hjá Liverpool eftir tímabilið, eða jafnvel leikinn gegn Chelsea á eftir, eru orðnir ansi háværir. Þjálfarinn sjálfur kyndir undir þessar sögusagnir. Hann var spurður ítrekað um framtíð sína á blaðamannafundi fyrir leikinn. Hann hefði auðveldlega getað sagt eitthvað á þá leið að hann yrði örugglega áfram hjá félaginu en sagði í staðinn ekkert nema um leikina tvo sem félagið á eftir. Benítez skrifaði undir fimm ára samning við félagið á síðasta ári. Árangur liðsins á tímabilinu hefur aftur á móti verið afleitur og mörgum finnst liðið hafa staðnað. Skiptar skoðanir eru meðal stuðningsmanna félagsins um hvort þeir vilji að Rafa fari eða ekki. Benítez hefur áður tjáð sig um að hann vilji fá 4-5 leikmenn til félagsins í sumar. Það bendir til þess að hann verði áfram en á meðan eignarhald félagsins er í óvissu er líklegt að stjóramálin verði það líka. Vitað er að Jose Mourinho hefur áhuga á að taka við Liverpool en hann er þó líklegri til að taka við Real Madrid. Roy Hodgson er einnig sagður líklegur til að taka við af Rafa. Í morgun var svo Dubai International Capital, fjárfestingafélag Sheikh Mohammed bin Rashid Al Maktoum, sagt vera að kaupa Liverpool fyrir 500 milljónir punda. Það var í Sunday Express slúðurritinu en þar segir einnig að Benítez hafi þegar samþykkt munnlega að skrifa undir hjá Juventus.
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira