Önnur sprenging í Kaupmannahöfn 10. september 2010 16:55 Lögreglan er með mikinn viðbúnað í höfuðborg Danmerkur.
Danskir fjölmiðlar segja að fyrir stundu hafi heyrst sprenging í Örstedsparken í Kaupmannahöfn þar sem lögreglan situr um mann sem talinn er hafa ætlað að gera sjálfsmorðssprengjuárás í borginni. Ekki er á þessari stundu vitað hvers eðlis hún var. Lögreglan fann manninn í garðinum skömmu eftir að sprengja sprakk í höndum hans á salerni á Hotel Jörgensen fyrr í dag. Hann hljóp þá alblóðugur út af hótelinu en hneig niður skammt þar frá. Hann er með breitt belti um sig miðjan og lögreglan óttast að það innihaldi sprengiefni. Það er því verið að reyna að klippa beltið af honum með fjarstýringu áður en gengið er upp að honum. Óstaðfestar fregnir herma að maðurinn hafi komið frá Luxemborg. Hótelið er skammt frá Nörreport járnbrautarstöðinni. Mögulegt er talið að maðurinn hafi verið að útbúa sprengju sína á salerni hótelsins og að það hafi verið hvellhettan sem sprakk og slasað hann. Sprengiefnið sé hinsvegar í fyrrnefndu belti og að hann hafi ætlað að gera sjálfsmorðsárás á lestarkerfið í Danmörku eins og gert var í Madrid á Spáni á sínum tíma. Öfgasinnaðir múslimar hatast mjög við Dani vegna gamanteikninganna af Múhameð spámanni sem birtar voru í Jyllandsposten.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Sjá meira