Innlent

Nýir ráðherrar komnir með lyklavöld

Ögmundur Jónasson tekur við embætti samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Mynd af vef Samgönguráðuneytisins.
Ögmundur Jónasson tekur við embætti samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Mynd af vef Samgönguráðuneytisins.
Lyklaskipti fóru fram í fjórum ráðuneytum seinnipartinn í dag í kjölfar uppstokkunar á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem greint var frá í í morgun.

Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, lét af embætti sínu í dag og við því tók Ögmundur Jónasson sem jafnframt gegnir embætti dómsmála- og mannréttindaráðherra. Við það tilefni afhenti Kristján Ögmundi lyklavöld af ráðuneytinu. Skömmu áður hitti Ögmundur Rögnu Árnadóttur í dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu þar sem hann tók formlega til starfa.

Guðbjartur Hannesson er nýr heilbrigðisráðherra. Hann tók við embætti á ríkisráðsfundi í dag. Guðbjartur tekur við embætti heilbrigðisráðherra af Álfheiði Ingadóttur, eftir breytingarnar. Hann fékk einnig lyklavöld af félags- og tryggingarmálaráðuneytinu í dag. Þar lét Árni Páll Árnason af störfum en tók við embætti efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann tók við lyklavöldum úr hendi Gylfa Magnússonar,

Gylfi og Ragna hafa átt sæti í ríkisstjórn frá því í febrúar á síðasta ári en Álfheiður hefur verið heilbrigðisráðherra í tæpa 11 mánuði.

Áfheiður Ingadóttir afhendir Guðbjarti Hannessyni lyklavöldin að heilbrigðisráðuneytinu.
Ögmundur Jónasson tekur við embætti samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Ragna Árnadóttir afhendir Ögmundi Jónassyni lyklavöldin að dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu.

Tengdar fréttir

Þingflokksfundi VG lokið - Einhugur innan flokksins

Þingflokksfundi VG er lokið en þar voru tillögur um ráðherraskipti kynntar. Þingmenn vildu ekki tjá sig að fundi loknum en Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fjármálaráðherra, sagði eftir fundinn að einhugur ríkti innan þingflokksins og að menn væru sáttur við breytingarnar.

Guðbjartur inn - Kristján út og Árni skiptir um stól

Guðbjartur Hannesson þingmaður Samfylkingarinnar, verður ráðherra í ríkisstjórn Íslands og Kristján L. Möller mun láta af embætti samgöngumálaráðherra. Þetta hefur fréttastofa eftir öruggum heimildum en nú stendur yfir flokksráðsfundur Samfylkingarinnar á Hótel Loftleiðum þar sem Jóhanna Sigurðardóttir formaður flokksins og forsætisráðherra kynnir tillögur að nýrri ráðherraskipan.

Guðbjartur kominn með lyklavöld í heilbrigðisráðuneytinu

Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, tók við lyklavöldum í heilbrigðisráðuneytinu af Álfheiði Ingadóttur forvera sínum klukkan hálffjögur í dag. Ragna Árnadóttir mun svo afhenda Ögmundi Jónassyni lykla af dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu klukkan fjögur. Svo verða lyklaskipti í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Því næst verða lyklaskipti í samgönguráðuneytinu og loks í félags- og tryggingamálaráðuneytinu.

Hver er þessi Guðbjartur Hannesson?

Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra velferðarmála á Íslandi, hefur skotist hratt upp á stjörnuhiminn íslenskra stjórnmála. Samfylkingarmenn hafa lengi þekkt Guðbjart sem traustan og vinnusaman baráttumann en hann vakti fyrst athygli landans þegar hann lét til sín taka í Icesave-málinu sem formaður fjárlaganefndar Alþingis. Þá var ljóst að vegsauki hans yrði mikill innan flokksins

Nýir ráðherrar taka við - myndir

Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, og Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, tóku við nýjum ráðuneytum á Bessastöðum í dag eins og oft hefur verið sagt frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×