Innlent

Hjálpaði nágrannakonu í barnsnauð

Slíkir nágrannakærleikar eru með fólkinu í Galtarlind í Kópavoginum að þegar kona þar var í barnsnauð kom stór hluti íbúa hússins henni til hjálpar.

Hjónin Sigita Andrijauskiene og Mundi fluttu hingað til lands frá Litháen fyrir rúmlega þremur árum. Þau eignuðust lítinn dreng fyrir tveimur og hálfu ári og eldsnemma á laugardaginn fæddist þeim lítil stúlka sem lá óskaplega á að komast í heiminn.

Nágrannakona og eiginmaður hennar komu til aðstoðar og fræddu starfsmenn Neyðarlínunnar um stöðu mála. Eiginmaður Sigitu var þó ekki í rónni og hafði samband við nágrananna á næstu hæð.

Ragnheiður Pálsdóttir segir að faðirinn Mundi hafi verið afar stressaður. „Þannig að ég stekk á fætur og býst við því að litli strákurinn þeirra hefði meitt sig. Ég átti svo sannarlega ekki von á því að hún væri tilbúin fyrir fæðingu."

Sigata og Ragnheiður.
Ragnheiður segir að þegar hún hafi komið að hafi önnur nágrannakona verið að aðstoða Sigitu. Skömmu síðarhafi sést í kollinn á barninu. Ragnheiður tók eftir því að naflastrengurinn var vafinn um háls barnsins, hún náði að losa hann og skömmu síðar tók hún á móti fallegri stúlku.

Áður hafði Sigita gantast með það á meðgöngunni að Ragnheiður yrði að vera til taks þegar að fæðingu kæmi. Hún segist ekki ætla spauga með slíkt aftur. Sigita segist hafa verið afar heppin og fengið þá hjálp sem þurfti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×