Fullvissa um aðild Mossad 19. febrúar 2010 00:30 Heita hefnda Liðsmenn Hamas hengja stóra mynd af al-Mabhouh upp á vegg í bænum Beit Lahiya á Gasaströnd þegar þúsundir manna komu saman að minnast hans.fréttablaðið/AP
Lögreglan í Dúbaí fullyrðir nú að ísraelska leyniþjónustan Mossad hafi skipulagt morðið á einum af leiðtogum palestínsku Hamas-hreyfingarinnar á hótelherbergi í Dúbaí í síðasta mánuði. Átján manns hafa nú verið nefndir og sakaðir um aðild að morðinu. Tvær konur eru í hópnum. Áður hafði lögreglan í Dúbaí birt nöfn, myndir og vegabréfsnúmer ellefu manna, sem sagðir voru grunaðir um aðild að morðinu. Alþjóðalögreglan Interpol lýsti síðan í gær eftir þessum ellefu mönnum og biður lögreglu um heim allan að handtaka þá hvar sem til þeirra næst. „Rannsóknir okkar hafa leitt í ljós að Mossad á aðild að morðinu á al-Mabhouh," sagði Dahi Khalfan Tamim, yfirmaður í lögreglunni í Dúbaí, við þarlent dagblað. „Allir þættir málsins benda eindregið til aðildar Mossad," sagði hann. Hamas-hreyfingin hafði áður fullyrt að menn á vegum ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad hefðu myrt Mahmoud al-Mabhouh. Ísraelar segja að hann hafi verið lykilmaður í smygli á vopnum til Hamas-hreyfingarinnar á Gasasvæðinu. Hinir grunuðu voru með vegabréf frá Bretlandi, Írlandi, Frakklandi og Þýskalandi. Fullvíst þykir að vegabréfin séu fölsuð, enda hefur komið í ljós að í það minnsta sjö nafnanna eru fengin frá ísraelskum ríkisborgurum, sem ekki er talið að eigi neina aðild að morðunum. Sendiherrar Ísraels í Bretlandi og á Írlandi voru í gær kallaðir á fund stjórnvalda í báðum þessum löndum, en ísraelsk stjórnvöld vilja hvorki játa né neita því hvort leyniþjónustan Hamas hafi staðið þarna að verki. Mahmoud al-Mabhouh var 49 ára þegar hann var myrtur á hótelherbergi sínu í Dúbaí 19. janúar. Hann var einn af stofnendum hernaðararms Hamas-hreyfingarinnar, sem ber ábyrgð á hundruðum árása á Ísrael og ísraelska borgara, þar með fjölmörgum sjálfsvígssprengjuárásum. Al-Mabhouh var þó ekki þekktur meðal Palestínumanna. Hann hefur búið erlendis undanfarna tvo áratugi, en er talinn hafa stundað smygl á flugskeytum til Hamas-hreyfingarinnar á Gasasvæðinu. Um þrjú þúsund manns komu saman í Gasaborg á miðvikudag til að minnast hans og heita hefndum.gudsteinn@frettabladi.is
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Fleiri fréttir Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Sjá meira