Innlent

Sjö vilja hanna nýjan Landspítala

sjö umsóknir bárust Katrín Arnþórsdóttir, verkefnastjóri hjá Ríkiskaupum, opnaði umsóknirnar í viðurvist umsækjenda í gær.fréttablaðið/gva
sjö umsóknir bárust Katrín Arnþórsdóttir, verkefnastjóri hjá Ríkiskaupum, opnaði umsóknirnar í viðurvist umsækjenda í gær.fréttablaðið/gva

Alls bárust sjö umsóknir í forval vegna hönnunarsamkeppni nýs Landspítala og eru stærstu verkfræðistofur landsins meðal þátttakenda. Ábyrgðaraðilar hönnunarteymanna sjö, sem skiluðu inn umsóknum í forvalið, eru allir íslenskir: Mannvit, TBL Arkitektar, VSÓ Ráðgjöf, Efla, Verkís, Almenna verkfræðistofan og Guðjón Bjarnason.

Hönnunarsamkeppnin tekur til áfangaskipts skipulags lóðar Landspítala við Hringbraut og útfærslu á 66 þúsund fermetra nýbyggingu þar. Áætlað er að framkvæmdir við nýja spítalann geti hafist á síðari hluta árs 2011 og standi fram á árið 2016. Áætlaður kostnaður við nýbygginguna er um 33 milljarðar króna á verðlagi í mars 2009 og skiptist hún í þrjá meginhluta: bráðakjarna með bráðamóttöku, myndgreiningu, gjörgæslu, skurðstofum og rannsóknarstofum; legudeildir með 180 rúmum sem öll eru í einbýli og sjúklingahótel með 80 herbergjum.

Engar athugasemdir voru gerðar við framkvæmd forvalsins þegar niðurstöðurnar voru kynntar í gær. Forvalsnefnd skilar niðurstöðum sínum eftir viku, mánudaginn 22. febrúar 2010. Valin verða allt að fimm teymi til þátttöku í hönnunarsamkeppninni þar sem skilafrestur er í byrjun júní 2010 og úrslit eiga að liggja fyrir mánuði síðar. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×