Wenger: 0,5 prósent líkur á því að Fabregas verði með á móti Hull Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2010 16:45 Cesc Fabregas verður næsta örugglega jakkaklæddur á Hull-leiknum á laugardaginn. Mynd/AFP
Það lítur út fyrir að Cesc Fabregas geti ekki spilað með Arsenal á móti Hull í ensku úrvalsdeildinni um helgina þar sem að spænski fyrirliðinn er enn að glíma við meiðsli aftan í læri. Cesc Fabregas meiddist í sigurleik á móti Burnley um síðustu helgi og gat ekki tekið þátt í seinni leiknum á móti Porto í Meistaradeildinni á þriðjudaginn. Arsenal-liðið virtist þó ekki sakna hans mikið í 5-0 sigri. „Eins og staðan er í dag þá mun Cesc Fabregas ekki spila leikinn á laugardaginn. Það eru bara 0,5 prósent líkur á því að hann verði orðinn góður þannig að það þarf kraftaverk til þess að hann verði með á móti Hull," sagði Arsene Wenger. „Tomas Rosicky er að glíma við nárameiðsli og við munum ekki vita það fyrr en á föstudaginn hvort hann geti verið með í leiknum. Sagna tognaði líka á ökkla þannig að við þurfum að öllum 48 tímunum fram að leik til þess að gera menn klára," sagði Wenger. Arsenal mun sakna annars miðjumanns á laugardaginn því Alex Song er í leikbanni í leiknum.
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira