Park vill skora meira - ekki keyptur til að selja treyjur Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. mars 2010 15:00
Kóreumaðurinn Ji-sung Park segir það hafa verið stórkostlega tilfinningu að skora sigurmarkið gegn Liverpool um helgina. Ekki hafi skemmt fyrir að skora markið fyrir framan Stretford End. „Nágrannaslagir eru sérstaklega mikilvægir leikir og að skora sigurmarkið í slíkum leik er einstök tilfinning. Að gera það fyrir framan Stretford End er ótrúlegt," sagði Kóreubúinn kátur en hann verður sífellt mikilvægari í stórleikjum liðsins. Hann skoraði einnig gegn AC Milan og Arsenal. „Ég vil skora fleiri mörk fyrir United og mér er í raun sama gegn hvaða liðum. Ég veit ég á að skora fleiri mörk. Mér finnst eðlilega frábært að skora gegn stórum liðum eins og Arsenal, Milan og Liverpool en ég vil upplifa þessa tilfinningu oftar." Þegar Park var fenginn til félagsins fyrir um fimm árum síðan þá héldu margir að það hefði eingöngu verið gert til þess að selja fleiri treyjur í Asíu. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, segir það þó vera vitleysu. „Ég vissi að hann myndi gera meira en að selja treyjur. Þegar ég sá hann í Meistaradeildinni með PSV árið 2005 þá hugsaði ég að þarna væri leikmaður sem skildi fótbolta. Hann er greindur knattspyrnumaður og agaður. Getur spilað í mörgum stöðum og ég efaðist aldrei um getu hans," sagði Ferguson.
Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira