Jóhanna ætlar ekki að víkja Anne 16. febrúar 2010 13:46 Mynd/GVA
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ætlar ekki að víkja breska hagfræðingnum Anne Sibert úr peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands vegna greinar sem hún skrifaði nýverið á vefritið Vo.Eu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, spurði Jóhönnu út í málið við upphaf þingfundar í dag. Hann sagði að umrædd grein gangi út að Ísland sé ekki of lítið til að borga allar kröfur Breta og Hollendinga í Icesavedeilunni. Því væri eðlilegt að Anne myndi víkja úr nefndinni. Sigmundur sagði að tímasetning greinarinnar væri afar skaðleg og tilgangur hennar óljós. Hann benti á að Anne væri á launum hjá íslenskum skattgreiðendum við það að gæta hagsmuna Íslendinga og þar á meðal að verja íslensku krónuna. Ekkert verra væri fyrir íslensku krónuna en skuldsetning í erlendri mynt. Sigmundur spurði því Jóhönnu hvort hún ætlaði ekki að víkja Anne úr nefndinni. Jóhanna sagðist ekki hafa séð greinina. Hún væri þó sammála að það væri ákaflega mikilvægt að menn færu varlega í yfirlýsingar varðandi samskipti Íslendinga við Breta og Hollendinga. Jóhanna tók undir með Sigmundi og sagði að ummæli Anne væru afar óheppileg. Aftur á móti starfi peningastefnunefnd og Seðlabankinn sjálfstætt. Það væri því ekki í hennar verkahring að víkja Anne úr nefndinni. Anne er doktor í hagfræði og prófessor við Birkbeck College University of London. Hún er einn af fimm nefndarmönnum í peningastefnunefnd Seðlabankans.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Sjá meira