Innlent

Sex Íslendingar eiga eftir að láta vita af sér

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Utanríkisráðuneytið. Mynd/ GVA.
Utanríkisráðuneytið. Mynd/ GVA.
Enn er ekki vitað um afdrif sex Íslendinga sem talið er að hafi verið í Chile þegar að jarðskjálfti skók landið á laugardaginn. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hafa 34 Íslendingar látið vita af sér.

Skjálftinn var 8,8 á Richter. Hann er talinn vera með þeim öflugustu sem mælst hafa. Að minnsta kosti 700 manns létu lífið í honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×