Enski boltinn

Jenas á leið undir hnífinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jermaine Jenas.
Jermaine Jenas.

Það eru talsverð meiðsli í herbúðum Tottenham þessa dagana. Harry Redknapp, stjóri Spurs, staðfesti í dag að Jermaine Jenas þyrfti að fara í aðgerð vegna nárameiðsla og svo þarf Aaron Lennon að hvila næstu sex vikurnar.

Þeir Tom Huddlestone og David Bentley eru einnig tæpir.

„Bentley er með rifu í náranum og Lennon verður að hvíla í sex vikur. Lykilmenn eru að lenda í smá basli. Það lítur svo út fyrir Jenas fari í aðgerð á miðvikudag," sagði Redknapp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×