Innlent

Ólafur leiðir VG í Kópavogi áfram

Ólafur Þór Gunnarsson, núverandi oddviti VG í Kópavogi, sigraði í forvali flokksins í dag.
Ólafur Þór Gunnarsson, núverandi oddviti VG í Kópavogi, sigraði í forvali flokksins í dag.

Þegar öll atkvæði í forvali Vinstri grænna í Kópavogi hafa verið talin eru úrslitin þau að Ólafur Þór Gunnarsson er í fyrsta sæti, Guðný Dóra Gestsdóttir er í öðru sæti, Karólína Einarsdóttir í því þriðja, Guðbjörg Sveinsdóttir í fjórða sæti, Arnþór Sigurðsson í því fimmta og að lokum hlaut Hreggviður Norðdahl það sjötta.

Kjörsókn var 42,36%.

VG fékk einn bæjarfulltrúa kjörinn í kosningunum 2006, Sjálfstæðisflokkur fimm, Samfylkingin fjóra og Framsókn einn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×