Enski boltinn

Portsmouth fyrst í undanúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Piquionne skorar fyrsta mark leiksins.
Piquionne skorar fyrsta mark leiksins.

Frederic Piquionne skaut Portsmouth inn í undanúrslit ensku bikarkeppninnar í dag er Portsmouth lagði Birmingham, 2-0, í fyrsta leik átta liða úrslitanna.

Piquionne skoraði tvö mörk í síðari hálfleik. Fyrra markið eftir klaufagang í vörn Birmingham og síðan eftir að hafa leikið varnarmann Birmingham sundur og saman.

Birmingham skoraði löglegt mark tíu mínútum fyrir leikslok en dómarar leiksins sáu ekki að boltinn var inn í markinu.

Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn fyrir Portsmouth og stóð sig vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×