Enski boltinn

Ferdinand missir af bikarúrslitunum - meiddur í baki

Ómar Þorgeirsson skrifar
Rio Ferdinand.
Rio Ferdinand. Nordic photos/AFP

Knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson hjá Manchester United hefur staðfest að varnarmaðurinn Rio Ferdinand verði ekki leikfær fyrir bikarúrslit deildarbikarsins gegn Aston Villa á sunnudag.

Búist var við því að Ferdinand myndi snúa aftur í lið United gegn West Ham í gærkvöldi en kappinn var þá fjarri góðu gamni eftir að hafa meiðst á æfingu.

„Rio meiddist í baki á æfingu og missir líklega af nokkrum leikjum og það er leitt," sagði Ferguson í leikslok eftir 3-0 sigur gegn West Ham. Meiðsli Ferdinand gera það líklega jafnframt að verkum að hann missir af vináttulandsleik Englands gegn Egyptalandi á Wembley-leikvanginum í næstu viku.

Varafyrirliðinn Steven Gerrard hjá Liverpool mun því væntanlega taka við fyrirliðabandinu fyrir leikinn en þetta verður fyrsti landsleikurinn síðan John Terry var sviptur fyrirliðastöðunni vegna vandræða sinna utan vallar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×