Clegg verður aðstoðarforsætisráðherra 12. maí 2010 08:15 Leiðtogar flokkanna hafa ákveðið að mynda ríkisstjórn sem verður fyrsta samsteypustjórnin í Bretlandi í 70 ár. Frjálslyndir demókratar fá fimm ráðherrastóla. Nick Clegg verður aðstoðarforsætisráðherra Mynd/AP
David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, tók í gærkvöldi við embætti forsætisráðherra Bretlands. Fimm ráðherrar í nýju stjórninni koma úr röðum Frjálslyndra demókrata. Eftir að Gordon Brown sagði af sér embætti í gær fór Cameron í Buckinghamhöll til þess að taka á móti stjórnarmyndunarumboði frá Elísabetu II drottningu Bretlands. Íhaldsmenn og Frjálslyndir demókratar hafa ákveðið að mynda nýja ríkisstjórn sem verður fyrsta samsteypustjórnin í Bretlandi í 70 ár. Frjálslyndir demókratar áttu einnig í viðræðum við Verkamannaflokkinn en samningamenn flokksins segja að hugur hafi ekki fylgt máli og ljóst hafi verið að Verkamannaflokkurinn ætlaði ekki að fara í ríkisstjórnarsamstarf. Stjórnmálaskýrendur telja að þungavigtamenn innan Verkamannaflokksins hafi talið að best væri fyrir flokkinn að viðurkenna ósigur sinn og láta öðrum eftir stjórn landsins um sinn því komi upp erfiðleikar í samstarfi íhaldsmanna og demókrata þurfi hugsanlega þurfi að kjósa á nýjan leik. Gengið verður frá formlegri stjórnarmyndun á næstu dögum en fyrir liggur að Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata, verður aðstoðarforsætisráðherra. Fjórir samflokksmenn hans taka einnig sæti í nýju stjórninni. Þá liggur fyrir að náinn félagi Camerons, George Osborne, verði fjármálaráðherra, og William Hague, fyrrverandi leiðtogi Íhaldsflokksins, taki við embætti utanríkisráðherra.
Mest lesið Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Innlent Farmur flugvélaeldsneytis hafi ekki uppfyllt gæðastaðla Innlent Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Innlent Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Innlent Enn deilt um sameiningu: „Í raun sé verið að leggja niður Háskólann á Akureyri“ Innlent Vill drónavarnir á Íslandi Innlent Lögreglan vilji kæfa glæpahópa í fæðingu Innlent Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Erlent Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Innlent Sundlauginni í Reykholti í Bláskógabyggð lokað í eitt ár Innlent Fleiri fréttir Kalla rússneska sendiherrann á teppið Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Fordæmir notkun fánans í þágu ótta og rasisma Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Drónaárás á eina stærstu olíuvinnslu Rússlands Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Á þriðja tug slasaðir eftir gassprengingu í Madríd Hundrað þúsund mótmæla hælisleitendum í Lundúnum „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Útnefnd forsætisráðherra Nepal fyrst kvenna Ekkja Kirk tjáir sig eftir morðið Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Hefja frumkvæðisathugun á dauðsföllum tengdum bóluefnum Allsherjarþingið ályktar um palestínskt ríki NATO eflir varnir í austri Erna Solberg hættir Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Trump segist nokkuð viss um að grunaður morðingi hafi verið handsamaður Bandaríkjastjórn fargar getnaðarvörnum fyrir 9,7 milljónir dala Stjórnvöld höfða mál á hendur Uber vegna mismununar gegn fötluðum Alríkislögreglan birtir myndskeið af morðingjanum Dæmdur í tuttugu og sjö ára fangelsi fyrir valdaránstilraun Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Breskur sendiherra rekinn vegna tengsla við Epstein Hver var Charlie Kirk? Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Neyðarfundur verði boðaður í Öryggisráði SÞ Sjá meira