Innlent

Milljarða viðskipti afgreidd með léttúð

Mynd/GVA
„Það er ótrúlegt að sjá milljarða viðskipti afgreidd með léttúð," segir Atli Gíslason, þingmaður VG, aðspurður um yfirheyrslur yfir stjórnendum Milestone og Sjóvá sem fjallað var um í Kastljósi fyrr í kvöld.

Í yfirheyrslum sagði Steingrímur Wernersson meðal annars að Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvá, hafi ekki haft neitt um fjárfestingar og bótasjóð Sjóvá að segja. Karl bróðir sinn og Guðmundur Ólafsson, framkvæmdastjóri Milestone, hafi stjórnað öllu og að Þór hafi ekki þorað að andmæla þeim.

Atli vill ekki tjá sig sérstaklega um yfirheyrslurnar og málefni fyrirtækjanna. Aftur á móti gildi strangar reglur um bótasjóði.

„Það að halda sér frá vitneskju leysir stjórnarmenn ekki undan ábyrgð. Jafnvel þó stjórnarmenn mæti ekki á stjórnarfund bera þeir ábyrgð. Þetta er algengasta orsök þess að menn eru dæmdir í efnahagsbrotamálum," segir Atli.


Tengdar fréttir

Gaf skýrslu tveimur dögum fyrir húsleitirnar

Steingrímur Wernersson, gjarnan kenndur við Milestone, fór að eigin frumkvæði til sérstaks saksóknara og gaf skýrslu í máli fyrirtækisins tveimur dögum áður en fram fóru húsleitir hjá Sjóvá og Milestone í júlí 2009. Steingrímur sagðist ekki hafa neitt að fela þar sem hann hefði verið plataður. Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld þar sem fjallað var um rannsóknina á Milestone og vitnað í afrit af yfirheyrslum yfir stjórnendum Sjóvá og Milestone.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×