Mikið álag á húð- og kynsjúkdómadeild 24. febrúar 2010 06:00 Mikið álag hefur verið á deildinni að undanförnu og allnokkur bið eftir því að komast að hjá læknum hennar.
Álagstoppur hefur verið á húð- og kynsjúkdómadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss að undanförnu og allnokkur bið eftir að komast að. „Á deildinni háttar þannig til að bið eftir viðtali getur verið lengri eða skemmri eftir aðstæðum hjá okkur,“ segir Jón Hjaltalín Ólafsson, yfirlæknir á deildinni. „Stundum getur verið löng bið, stundum er engin bið. Að undanförnu hefur fólk þurft að bíða allnokkuð til að komast í viðtal.“ Jón segir mikið álag hafa verið á starfsfólki deildarinnar að undanförnu. „Við höfum verið með heldur færri lækna en áður,“ útskýrir hann. „Staðan er því sérstaklega erfið núna. Það getur verið tveggja vikna bið eftir að komast að hjá lækni og vika eftir að fá tíma hjá hjúkrunarfræðingi. Venjulega leiðin er sú, að séu engin einkenni til staðar fær fólk tíma hjá hjúkrunarfræðingi. Hann tekur sýni hjá viðkomandi. Reynist eitthvað vera að vísa hjúkrunarfræðingarnir á læknana, þar sem viðkomandi fær tíma í meðferð. Ef sjúklingar lýsa einkennum þegar tími er pantaður, svo sem kviðverkjum, sviða eða að þeim líður mjög illa er auðvitað reynt að sinna þeim fyrr og þeir teknir aukalega inn ef hægt er. Svo getur fólk alltaf leitað á heilsugæsluna, til húð- og kynsjúkdómalækna eða kvensjúkdómalækna ef það fær ekki þá þjónustu sem það óskar eftir hjá okkur.“ Jón segir þetta fyrirkomulag, að einkennalausir fái fyrst viðtal hjá hjúkrunarfræðingi haft á til þess að spara læknatímana. Hins vegar séu hjúkrunarfræðingarnir einnig í erfiðleikum nú þar sem verið sé að skera alls staðar niður, ekki síst hjá húð- og kynsjúkdómadeild þar sem deildin hefur meðal annars þurft að sjá á eftir reyndum hjúkrunarfræðingi og ekki fengið að ráða annan í staðinn. „Það er erfiður tími hjá okkur núna,“ segir Jón. „Læknar hafa þurft að fara í frí, það hafa verið veikindi og svo mætti áfram telja.“ Jón telur að ástandið muni lagast eftir nokkrar vikur. Spurður hvort komið hafi til þess að þurft hafi að vísa fólki á einkastofur úti í bæ segir Jón ekki mikið um það. „En auðvitað kemur það fyrir ef við ráðum ekki við tilfellið hér á deildinni. Það er ýmislegt sem við getum ekki gert hér. Við höfum til dæmis ekki tæki né mannafla til að sinna erfiðari meðferðum gegn sumum kynsjúkdómum. Viðkomandi einstaklingum er þá vísað á stofur úti í bæ, ekki síst til kvensjúkdómalækna og kynsjúkdómalækna.“jss@frettabladid.is
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Sjá meira