Enski boltinn

Deco ætlar að yfirgefa Chelsea

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Portúgalski landsliðsmaðurinn Deco hefur lýst því yfir að hann vilji hætta hjá Chelsea í sumar og flytja til Brasilíu þar sem hann er fæddur og uppalinn.

Þessi 32 ára miðjumaður hefur verið í herbúðum Chelsea síðan 2008 er hann var keyptur þangað frá Barcelona.

Honum hefur ekki alltaf gengið sem skildi að festa sig í sessi í byrjunarliði Chelsea á þessum árum og hefur takmarkað fengið að spila síðan Carlo Ancelotti tók við liðinu.

Hann hefur aðeins verið í byrjunarliðinu í 10 leikjum í vetur og segir að nú sé rétti tíminn til þess að taka næsta skref.

Deco segist eiga tvö góð ár eftir í boltanum og vill eyða þeim í heimalandinu þar sem börnin hans búa.

Hann er enn samningsbundinn Chelsea og því þarf Chelsea að selja hann eða lána svo hann komist heim.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×