Innlent

Vitorðsmaður gamla kókaínsmyglarans handtekinn

Breki Logason skrifar
Leifsstöð. Eldri borgarinn reyndi að smygla efnunum í gegnum Keflavíkurflugvöll.
Leifsstöð. Eldri borgarinn reyndi að smygla efnunum í gegnum Keflavíkurflugvöll.

Lögreglan á Suðurnesjum hefur nú í haldi mann sem talinn er vera vitorðsmaður sjötugs manns sem handtekinn var fyrr í mánuðinum með tæpt kíló af kókaíni í Leifsstöð.

Tæplega sjötugur karlmaður var úrskurðaður í gæsluvarðhald í síðustu viku eftir að 877 grömm af kókaíni fundust í tveimur ferðatöskum sem hann kom með hingað til lands. Maðurinn var að koma frá Kaupmannahöfn en efnin fundust við reglubundið eftirlit tollgæslu.

Maðurinn var yfirheyrður fyrir helgi en grunur leikur á að hann sé burðardýr. Í gær handtók lögreglan á Suðurnesjum síðan tæplega þrítugan íslenskan karlmann sem er grunaður um að vera vitorðsmaður mannsins.

Þeir munu ekki tengjast fjölskylduböndum en rannsókn málsins er í fullum gangi samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×