Agger: Ég er ánægður hjá Liverpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. september 2010 10:15 Steven Gerrard og Daniel Agger, til hægri. Nordic Photos / Getty Images
Daniel Agger neitar því að hafa gagnrýnt Roy Hodgson knattspyrnustjóra eins og haft var eftir honum víða í enskum fjölmiðlum í gær. Ummæli Agger voru tekin upp úr dönskum dagblöðum sem aftur höfðu þetta eftir viðtali sem dönsk sjónvarpsstöð tók við Agger eftir leik United og Liverpool um síðustu helgi. „Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með blöðin í Danmörku því ég ræddi aldrei við þau. Ég svaraði aðeins þeim spurningum sem ég var spurður að í sjónvarpsviðtalinu," sagði Agger í viðtali á heimasíðu Liverpool. „Vandamálið er að spurningarnar birtust aldrei í blöðunum - bara svörin. Svo settu blöðin fram sínar eigin spurningar við svörin og útkoman var algjörlega röng. Þess vegna varð ég fyrir svona miklum vonbrigðum." „Sem dæmi má nefna þau ummæli sem eru höfð eftir mér að ég vilji ekki gefa langar sendingar. Í sjónvarpsviðtalinu var ég spurður hvað ég þyrfti að gera til að komast aftur í liðið og ég gaf í skyn að ég þyrfti að gefa fleiri langar sendingar. Ég sagði að ég myndi ekki gera það vegna þess að ég er ekki þannig leikmaður. Þaðan eru þessi ummæli komin." „Í rauninni tel ég að við spilum góða knattspyrnu og það sýndum við gegn bæði Arsenal og Manchester United." Og hann segist vera ánægður í herbúðum Liverpool. „Ég hef tekið þátt í öllum leikjum tímabilsins. Auðvitað finnst mér það leiðinlegt þegar ég er ekki í liðinu en ég hef verið hér í fimm ár og mér líkar vistin vel. Ég væri ekki búinn að vera hér svo lengi ef það væri ekki tilfellið. Ég er enn ánægður og mun halda áfram að berjast fyrir mínu sæti í byrjunarliðinu."
Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn „Gangandi martröð“ Enski boltinn Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira