Bleikur föstudagur í dag 8. október 2010 12:09 Krabbameinsfélagið gaf Jóni Gnarr borgarstjóra bleik jakkaföt í tilefni dagsins.
Í dag klæðist fólk einhverju bleiku og vefsíður, byggingar og fleira eru skreyttar bleiku til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Októbermánuður er mánuður bleiku slaufunnar og árveknisátaks gegn krabbameinum hjá konum. Krabbameinsfélagið efnir nú til bleiks dags og hvetur fólk um land allt til að klæðast bleiku í dag til tákns um samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Krabbameinsfélagið selur sérstakar bleikar nælur og rennur ágóðinn til baráttunnar. Nú hafa 26 þúsund nælur selst en Krabbameinsfélagið stefnir á að selja fimmtíu þúsund nælur. Þá gaf Krabbameinsfélagið Jóni Gnarr borgarstjóra bleik jakkaföt í tilefni dagsins en þau voru sérsniðin á hann af Berglindi Magnúsdóttur í Klæðskerahöllinni og mætti borgarstjórinn í Ráðhúsið í morgun í nýju fötunum. Hið opinbera sýnir einnig samstöðu því bleikri lýsingu hefur verið varpað á opinberar byggingar eins og Stjórnarráðið, Háskóla Íslands og húsnæði Menntaskólans í Reykjavík. Einkaaðilar gera slíkt hið sama og ýmis húsnæði í bænum eru skreytt með einhverju bleiku. Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsfélaginu ætla nokkrir vinnustaðir að leika sér dálítið með bleika þemað í dag og keppa um flottasta dressið og bestu bleiku deildirnar. Krabbameinsfélagið hvetur fólk til að senda sér skemmtilegar bleikar myndir af vinahópnum á netfangið laila@krabb.is, og verða þessar myndir settar á vef Krabbameinsfélagsins og á síðu félagsins á Facebook. Ýmsar vefsíður eru klæddar bleiku í dag og er fréttavefurinn Vísir skreyttur með fagurbleikum borða.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira