Enski boltinn

Ferguson ekki ánægður með Capello

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Wayne Rooney mun væntanlega ekki leika með Man. Utd um helgina gegn Wolves þar sem hann er tæpur eftir að hafa leikið 87 mínútur í landsleiknum gegn Egyptum.

„Við þurfum að sjá til hvort við notum Wayne því hann spilaði í næstum 90 mínútur á Wembley. Það var afar svekkjandi að sjá," sagði Ferguson.

„Rooney lék klukkutíma á þessum velli síðasta sunnudag og svo tæplega 90 næsta miðvikudag. Það er einfaldlega allt of mikið. Þess vegna er hann tæpur.

„Ég hélt að Capello myndi skipta honum fyrr af velli í leiknum. Sérstaklega þar sem hann meiddist aðeins á sunnudeginum," sagði Ferguson.

Hann staðfesti þó að Rio Ferdinand muni spila um helgina og væntanlega leika við hlið Nemanja Vidic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×