Innlent

Þjóðarsorg lýst yfir í Portúgal

MYND/AFP

Búist er við því að stjórnvöld í Portúgal lýsi yfir þriggja daga þjóðarsorg í landinu en að minnsta kosti 42 létust í miklum flóðum á eyjuni Madeira á laugardag.

Björgunarsveitir eru enn að störfum og búist er við því að tala látinna geti hækkað. Madeira tilheyrir Portúgal og liggur um 480 kílómetra undan strönd Vestur Afríku. Þar búa um 250 þúsund manns.

Um 900 kílómetrar eru til meginlands Evrópu og er eyjan vinsæll ferðamannastaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×