Innlent

Fjórhjólamaður ók á keðju

Sjúkramenn hlúa að slösuðum fjórhjólamanni.
Sjúkramenn hlúa að slösuðum fjórhjólamanni.

Fjórhjólaslys varð á sjötta tímanum í dag við rætur Esjunnar við Esjuberg. Svo virðist sem ökumaður fjórhjólsins hafi ekið á keðju sem var strengd yfir veg.

Sjúkrabíll var kallaður á vettvang auk lögreglunnar en maðurinn var slasaður eftir byltuna.



Fjórhjólið endaði utan vegar.

Ekki er vitað hvort maðurinn hafi verið mikið meiddur en ekki er talið að um alvarlegt slys hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×