Broughton: Þetta eru réttu mennirnir til að kaupa Liverpool - myndband Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. október 2010 19:30 Martin Broughton með Roy Hodgson, knattspyrnustjóri Liverpool. Nordic Photos / Getty Images
Martin Broughton, stjórnarformaður Liverpool, segist handviss um að félagið hafi fundið kaupendur við hæfi. Eins og áður hefur verið fjallað um samþykkti stjórn Liverpool kauptilboð New England Sports Ventures í félagið. NESV er eigandi bandaríska hafnaboltaliðsins Boston Red Sox auk annarra íþróttaliða í Bandaríkjunum. Hins vegar eru núverandi eigendur, Tom Hicks og George Gillett, ósamþykkir því að taka tilboðinu en þeir eru í minnihluta í stjórn Liverpool. Þeir munu nú fara með málið fyrir dómstóla og sagði Broughton í samtali við heimasíðu Liverpool, sem má skoða hér, að það væri helst það sem gæti komið í veg fyrir söluna. „Ef þeir vinna dómsmálið geta þeir komið í veg fyrir söluna," sagði Broughton. „En ég er vongóður um að félagið muni senn fá nýja eigendur." Tíminn er þó naumur fyrir þá Hicks og Gillett þar sem að tæplega 300 milljóna punda skuld fellur á félagið ef hún verður ekki greidd fyrir 15. október næstkomandi. „Ég á von á niðurstöðu í dómsmálinu í lok næstu viku. Það er líka hægt að áfrýja úrskurðinum en það tekur einnig stuttan tíma," sagði Broughton. Hann hafði skýr skilaboð til stuðningsmanna Liverpool. „Haldið trúnni. Við fundum réttu eigendurna. Takk fyrir þolinmæðina," sagði hann.
Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Fótbolti Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Íslenski boltinn Blikarnir hoppuðu út í á Fótbolti Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Íslenski boltinn Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Enski boltinn Trump réði sjálfan sig í stórt starf á Ólympíuleikunum Sport Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Körfubolti „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ Íslenski boltinn Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Körfubolti Fleiri fréttir Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Sjá meira