Innlent

Eldur slökktur í ruslageymslu í Hátúni

Eldur kom upp í ruslageymslu í Hátúni 6 rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Allt tilltækt slökkvilið var kallað á staðinn og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Í fyrstu var óttast um að eldurinn væri í þaki hússins enda tilkynntu sjónarvottar um reyk frá þakinu. Líklega hefur hann komið út um lofttúðu frá sorpgeymslunni.


Tengdar fréttir

Slökkviliðið kallað í Hátún

Allt tiltækt slökkvilið hefur verið kallað að Hátúni 6 í Reykjavík en tilkynnt var um reyk á þaki hússins sem er fjölbýlishús. Nánari upplýsingar er ekki að hafa frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í augnablikinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×