Enski boltinn

Cole sagður vilja vera áfram í herbúðum Chelsea

Ómar Þorgeirsson skrifar
Ashley Cole.
Ashley Cole. Nordic photos/AFP

Fregnir í breskum fjölmiðlum í dag og í gær bentu til þess að Chelsea hefði í hyggju að sekta og selja Ashley Cole eftir nýlegt hneyksli í einkalífi leikmannsins.

Leikmaðurinn sjálfur var ennfremur sagður ósáttur með framferði félagsins í sinn garð og væri tilbúinn að fara en spænsku stórliðin Barcelona og Real Madrid voru nefnd sem líklegir áfangastaðir.

En samkvæmt heimildum Sky Sports fréttastofunnar í dag vill vinstri bakvörðurinn og vandræðagemsinn Cole vera áfram í herbúðum Chelsea.

Talað er um að Cole, sem verður frá næstu mánuðina vegna ökklameiðsla, muni hitta forráðamenn Chelsea á næstu vikum og þá verði tekin ákvörðun um hvort að leikmaðurinn verði sektaður eða ekki og framhaldið rætt.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×