Innlent

Andri Snær hlýtur Kairos verðlaunin

Andri Snær tók við verðlaununum í gær.
Andri Snær tók við verðlaununum í gær.

Andri Snær Magnason rithöfundur veitti Kairos verðlaununum viðtöku í Hamborg sunnudaginn 28. febrúar. Athöfnin sjálf, sem helguð er verðlaunahafanum og verkum hans, fór fram í Borgarleikhúsinu í Hamborg að viðstöddum 1200 gestum. Í tilkynningu frá Forlaginu segir að á meðal þeirra sem fram komu hafi verið Emilíana Torrini, Pétur Hallgrímsson, Steindór Andersen, Páll frá Húsafelli og Hilmar Örn Hilmarsson. Víða mun hafa verið um verðlaunaafhendinguna í evrópskum fjölmiðlum í gær.

„Stofnun kennd við Alfred Toepfer veitir verðlaun þessi árlega og nemur verðlaunaféð 75.000 evrum. Stofnunin hefur styrkt og verðlaunað listamenn í Þýskalandi allt frá árinu 1931. Meðal styrkþega eru t.d. Nóbelsverðlaunahafar á borð við Imre Kertesz og Harold Pinter, myndlistarmennirnir Ólafur Elíasson og David Hockney og danshöfundurinn Pinu Bausch. Með Kairos verðlaununum var fjölmörgum flokkum verðlauna steypt saman í ein stór verðlaun sem eru nú með þeim stærstu sem listamönnum hlotnast," segir ennfremur.

Kairos verðlaunin eru veitt einu sinni á ári og ætluð listamönnum á sviði myndlistar, tónlistar, arkitektúrs, kvikmyndagerðar, ljósmyndunar, ritlistar eða blaðamennsku. „Verðlaunin voru fyrst veitt árið 2007 en þá hlaut þau þýski tónlistarfræðingurinn Albrecht Dümling sem m.a. hefur unnið með tónlist eftir listamenn sem voru ofsóttir eða ritskoðaðir á tímum þriðja ríkissins. Rúmenski sýningastjórinn Tímea Junghaus hlaut þau árið eftir og í fyrra var það flæmsk-markóski danshöfundurinn Sidi Larbi Cherkaoui verðlaunaður."

Verðlaunin eru nefnd eftir gríska guðinum KAIROS sem var guð hinnar „réttu stundar" og eru hugsuð sem viðurkenning fyrir framúrskarandi störf en þó ekki ævistarf - heldur eru þau hugsuð sem hvatning og stuðningur til frekari verka.

„Andri Snær hefur vakið athygli fyrir óvenju fjölbreyttan feril, frá ljóðlist, leikritun og skáldskap til verka sem taka á samfélagslegum málefnum og náttúruvernd. Dómnefndin byggði val sitt meðal annars á því að höfundurinn Andri Snær stillir sér ekki upp sem hlutlaus áhorfandi heldur sem beinn þáttakandi í samfélaginu. Í fréttatilkynningu frá Alfred Toepfer stofnuninni segir meðal annars að: "með húmor og sannfæringarkrafti ljái hann kraftmikilli grasrótarhreyfingu á Íslandi rödd sína og sköpunarhæfileika"," segir einnig í tilkynningunni.

Formaður dómnefndar var Christoph Stölzl , sagnfræðingur, stjórnmálamaður og fyrrum ríkisstjóri en með honum í nefndinni sátu m.a. rithöfundar, ritstjórar og aðrir framámenn í evrópsku menningarlífi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×