Andri Snær hlýtur Kairos verðlaunin 1. mars 2010 13:15 Andri Snær tók við verðlaununum í gær.
Andri Snær Magnason rithöfundur veitti Kairos verðlaununum viðtöku í Hamborg sunnudaginn 28. febrúar. Athöfnin sjálf, sem helguð er verðlaunahafanum og verkum hans, fór fram í Borgarleikhúsinu í Hamborg að viðstöddum 1200 gestum. Í tilkynningu frá Forlaginu segir að á meðal þeirra sem fram komu hafi verið Emilíana Torrini, Pétur Hallgrímsson, Steindór Andersen, Páll frá Húsafelli og Hilmar Örn Hilmarsson. Víða mun hafa verið um verðlaunaafhendinguna í evrópskum fjölmiðlum í gær. „Stofnun kennd við Alfred Toepfer veitir verðlaun þessi árlega og nemur verðlaunaféð 75.000 evrum. Stofnunin hefur styrkt og verðlaunað listamenn í Þýskalandi allt frá árinu 1931. Meðal styrkþega eru t.d. Nóbelsverðlaunahafar á borð við Imre Kertesz og Harold Pinter, myndlistarmennirnir Ólafur Elíasson og David Hockney og danshöfundurinn Pinu Bausch. Með Kairos verðlaununum var fjölmörgum flokkum verðlauna steypt saman í ein stór verðlaun sem eru nú með þeim stærstu sem listamönnum hlotnast," segir ennfremur. Kairos verðlaunin eru veitt einu sinni á ári og ætluð listamönnum á sviði myndlistar, tónlistar, arkitektúrs, kvikmyndagerðar, ljósmyndunar, ritlistar eða blaðamennsku. „Verðlaunin voru fyrst veitt árið 2007 en þá hlaut þau þýski tónlistarfræðingurinn Albrecht Dümling sem m.a. hefur unnið með tónlist eftir listamenn sem voru ofsóttir eða ritskoðaðir á tímum þriðja ríkissins. Rúmenski sýningastjórinn Tímea Junghaus hlaut þau árið eftir og í fyrra var það flæmsk-markóski danshöfundurinn Sidi Larbi Cherkaoui verðlaunaður." Verðlaunin eru nefnd eftir gríska guðinum KAIROS sem var guð hinnar „réttu stundar" og eru hugsuð sem viðurkenning fyrir framúrskarandi störf en þó ekki ævistarf - heldur eru þau hugsuð sem hvatning og stuðningur til frekari verka. „Andri Snær hefur vakið athygli fyrir óvenju fjölbreyttan feril, frá ljóðlist, leikritun og skáldskap til verka sem taka á samfélagslegum málefnum og náttúruvernd. Dómnefndin byggði val sitt meðal annars á því að höfundurinn Andri Snær stillir sér ekki upp sem hlutlaus áhorfandi heldur sem beinn þáttakandi í samfélaginu. Í fréttatilkynningu frá Alfred Toepfer stofnuninni segir meðal annars að: "með húmor og sannfæringarkrafti ljái hann kraftmikilli grasrótarhreyfingu á Íslandi rödd sína og sköpunarhæfileika"," segir einnig í tilkynningunni. Formaður dómnefndar var Christoph Stölzl , sagnfræðingur, stjórnmálamaður og fyrrum ríkisstjóri en með honum í nefndinni sátu m.a. rithöfundar, ritstjórar og aðrir framámenn í evrópsku menningarlífi.
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Útlendingum fækkað það sem af er ári Innlent Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Erlent Fleiri fréttir Tímabært sé að skoða vaxtamörk borgarinnar Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Sjá meira