Innlent

Flugumferðarstjórar undirbúa verkfall

MYND/Teitur

Flugumferðarstjórar samþykktu einróma á aðalfundi sínum í gærkvöldi að undirbúa strax atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun, og að niðurstaða liggi fyrir undir lok vikunnar. Í tilkynningu frá félaginu segir að kjarasamningar þeirra hafi verið lausir frá því í október í fyrra, eða í fjóra mánuði.

Viðræður við Samtök atvinnulífsins hafi ekki skilað árangri og hvorki hafi gengið né rekið eftir að málinu var vísað til ríkissáttasemjara.

Ekki liggur fyrir hvenær vrkfall verður boðað, ef verkfallsboðunin verður samþykkt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×