Dætur Gunnars og tengdasynir gengin í Framsóknarflokkinn 23. febrúar 2010 15:22 Ómar Stefánsson ásamt Gunnari Birgissyni en dætur hans eru gengnar í Framsóknarflokkinn.. „
Það var greinilega mikið um nýskráningar hjá okkur. Það vakti töluverða athygli í hópnum að ein dóttir Gunnars Inga Birgissonar var gengin í Framsóknarflokkinn. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að það er ekki bara önnur dóttirin sem er komin heldur báðar og tengdasynirnir líka," segir bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi, og formaður bæjarráðs, Ómar Stefánsson á bloggi sínu. Þar upplýsir hann lesendur um að dætur og tengdasynir Gunnars I. Birgissonar, sem tapaði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um helgina, væru nýskráð í Framsóknarflokkinn en athygli vekur að prófkjör Framsóknarflokksins fer fram næstu helgi og berjast þar þrír frambjóðendur um fyrsta sætið á listanum. Þeir eru, fyrir utan Ómar, Einar Kristján Jónsson og Gísli Tryggvason. Þá sætir það ekki minni tíðindum að Halldór Jónsson verkfræðingur er einnig gengin til liðs við Framsókn. Nokkuð var fjallað um hann og störf hans í aðdraganda prófkjörs Sjálfstæðismanna. Bæjarráð Kópavogs samþykkti á fundi sínum á dögunum að óska álits samgöngur- og sveitastjórnaráðuneytisins á hæfi Halldórs Jónssonar sem skoðunarmanns reikninga Kópavogsbæjar. Upplýst var í fjölmiðlum að Halldór hefði fengið rúmlega sjötíu milljónir króna frá bænum fyrir ýmis hönnunar-og eftirlitsstörf á árunum 2003 til 2008. Ekkert þessara verka var boðið út. „Ekki er ég að fara grenja yfir því, heldur fagna ég þessum nýju félögum. Því ég veit að þau eru að gera þetta að góðum hug fyrir Einar Kristján. Hugsanlega gæti Frjáls miðlun unnið "pro bono" fyrir hann eitthvert kynningarefni," skrifar Ómar á heimasíðu sína en mikill styr var um fyrirtækið Frjálsa miðlun á síðasta ári en það er í eigu dóttur Gunnars, sem nú er gengin í Framsókn. Skilja má á greininni hans Ómars að Sjálfstæðismenn hafi smalað í Framsóknarflokkinn til þess að taka þátt í prófkjörinu um helgina. Þegar hann er spurður út í þetta svaraði hann einfaldlega: „Segir þetta ekki allt sem segja þarf."
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Húsnæði fundið undir brottfararstöð Innlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Erlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Fleiri fréttir Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Höfnuðu ráðgjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í forgangi Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráðherra illa Blóðtaka úr hryssum telst tilraun á dýrum Þögull sem gröfin um Sævar Ók of hratt í hálku þegar banaslys varð á Fjarðarheiði Húsnæði fundið undir brottfararstöð Óvænt gagn og afleikur ríkisstjórnarinnar „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Vilja færa fjögur þingsæti í Suðvesturkjördæmi Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Sleppt að lokinni yfirheyrslu vegna hótelbruna Ráðin aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Rauða krossins Aðalmeðferð hafin í Dettifossmálinu Telur ekki tímabært að leggja fram miðlunartillögu Skjálftahrina suðvestur af Eldey Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Réðst á ökumann með slökkvitæki Ingólfur leysir Baldur af Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Útkall lengst úti á hafi þriðja daginn í röð Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Ekki víst að asbestmengun hafi borist með reyknum Skipuleggjandi smygls handtekinn á Spáni og ákærður hér Fiskikóngurinn og Háskólinn rannsaka skötu Eftir því sem lengra líður eykst óvissan Stór skjálfti í Langjökli fannst víða Sjá meira