Innlent

Nýtt Ísland blæs til mótmæla

Bílamótmæli. Mynd úr safni.
Bílamótmæli. Mynd úr safni.

Nýtt Ísland blæs til áttundu bílalána mótmæla fyrir utan höfuðstöðvar Íslandsbanka að Kirkjusandi klukkan 12:15 í dag.

Bílflautur verða þeyttar í þrjár mínútur fyrir utan höfuðstöðvar bankans til að mótmæla breyttum höfuðstóli bílalánasamninga bankans.

Samkvæmt tilkynningu skorar Nýtt Ísland á alla lántakendur myntkörfulána að krefjast réttlætis og leiðréttinga á stökkbreyttum höfuðstóli bílalánasamninga og eignaleigusamninga.

„Nýfallinn dómur í Héraðsdómi hefur gefið lántakendum von um réttlæti,“ segir svo í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×