Innlent

Sjómennirnir báðir útskrifaðir

Hoffellið við bryggju.
Hoffellið við bryggju. MYND/Óðinn Magnason

Mennirnir tveir, sem voru hætt komnir þegar þeir misstu meðvitund vegna súrefnisskorts í lestum fiskiskipsins Hoffells nýverið, hafa báðir verið útskrifaðir af sjúkrahúsi og eru á góðum batavegi.

Fyrst eftir slysið var þeim haldið sofandi í öndunarvélum á Gjörgæsludeild Landsspítalans og voru lífslíkur annars þeirra um tíma taldar tvísýnar. Hagsmunasamtök sjómanna hafa viðrað þá hugmynd að loftræstingu verði komið í þau skip, sem veiða gulldeplu, til að koma í veg fyrir að viðlíka slys endurtaki sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×